Það er mikil blessun að Ísland hefur í gegnum tíðina ekki verið eins ginnkeypt fyrir lýðskrumi og lýðhyggju og ýmis samfélög í Evrópu. Slíkar raddir heyrast vitaskuld stundum en þær hafa hingað til ekki hlotið raunverulegt brautargengi. Í þessu samhengi skiptir máli að Sjálfstæðisflokkurinn, kjölfestuflokkurinn á hægri væng íslenskra stjórnmála, hefur staðist freistingar um að fara í slíkar áttir. Andstæðingar flokksins hafa oft reynt að halda hinu gagnstæða fram, en bæði almenningur og fræðafólk hefur séð í gegnum slíkan áburð.
Sjálfstæðisflokkurinn er borgaralega sinnaður flokkur og laus við öfgar, flokkur yfirvegunar og raunsæis og þarf að vera það áfram. Þetta skiptir miklu máli fyrir sögulega stöðu Sjálfstæðisflokksins að geta bent á andstöðu sína við hvers kyns lýðskrum, öfgahyggju og fordómadekur þegar andstæðingar reyna að halda því fram að skilgreina megi Sjálfstæðisflokkinn sem hluta af slíkum hreyfingum.
Mjög mikilvæg verðmæti felast í því fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda þessari stöðu; að nálgast lausnir út frá borgaralegum gildum. Þau byggjast á því að treysta einstaklingnum umfram miðstýringu, en jafnframt að í einstaklingsfrelsinu felist umhyggja fyrir samfélaginu.
Í nálguninni um borgaraleg gildi felst sú afstaða að almennir borgarar beri ábyrgð á samfélaginu sínu og að stjórnvöld gegni mikilvægu hlutverki en séu ekki upphaf og endir alls. Það má hugsa sér að snúa út úr hinni frægu setningu Loðvíks Frakkakonungs sem sagði: „Ríkið, það er ég“ og segja: „Ríkið, það er ég – og það ert þú og við öll.“ Hið opinbera er eitthvað sem við berum saman ábyrgð á og getum þess vegna ekki hegðað okkur eins og unglingur gagnvart foreldrum og bæði kvartað stöðugt undan afskiptasemi en ætlast á sama tíma til algjörrar verndar og forsjárhyggju.
Að lifa í borgaralegu samfélagi veitir okkur ómetanleg réttindi og frelsi, en leggur jafnframt á herðar okkar skyldur. Að vilja valdeflingu einstaklingsins; hvort sem um ræðir kraftmikinn frumkvöðul í einkageiranum, metnaðarfullan kennara, útsjónarsaman hjúkrunarfræðing eða ábyrgan verkfræðing.
Skyndilausnir og slagorðapólitík, hvort sem þeim er pakkað í litlar umbúðir eða engar, skila ekki árangri. Yfirvegun og raunsæi á vandasöm viðfangsefni, með áherslu á mannlega og borgaralega nálgun, þar sem öll okkar fá tækifæri til að leggja af mörkum og gera gagn, er það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt áherslu á í 95 ár og hann verður að halda áfram að gera.
Nú reynir á borgaralegu öflin.