Author: admin
-
Um styrkleika
Glíman við heimsfaraldur á borð við Covid-19 reynir mjög á öll samfélög. Áskorun af þessu tagi getur afhjúpað bæði styrkleika og veikleika í samfélagsgerð, þjóðarsál og stjórnmálum. Víða hefur réttilega verið höfðað til samstöðu um að fylgja vísindalegum ráðleggingum. Þó að nauðsynlegt sé að styðjast við bestu mögulegu þekkingu og ráðgjöf býður viðfangsefnið þó ekki…
-
Alvarleg staða
Hertar sóttvarnaaðgerðir á landamærunum sem tóku gildi í vikunni voru vonbrigði fyrir alla. Fjölgun Covid-smita, bæði innanlands, á landamærunum og í löndunum í kringum okkur, þótti hins vegar gefa tilefni til að grípa hratt til afgerandi varna. Vandasamt og jafnvel ómögulegt er að kveða upp stóra dóma um réttar eða rangar ákvarðanir í þessu ferli…
-
Þetta veltur á okkur
Um miðjan mars, skömmu eftir að Covid-19 varð sá heimsfaraldur sem óttast hafði verið, birti Imperial College í London fræga skýrslu um möguleg viðbrögð við þessari miklu vá. Eitt línurit í skýrslunni vakti sérstaka athygli. Það sýndi sveigjanlega nálgun þar sem skipst yrði á að herða og slaka á reglum um samkomubann eftir því sem…
-
Staða Rio Tinto og ISAL
Rio Tinto tilkynnti í vikunni að fyrirtækið hefði kvartað til Samkeppniseftirlitsins vegna þess sem það telur vera misnotkun á markaðsráðandi stöðu af hálfu Landsvirkjunar. Jafnframt segir Rio Tinto að láti Landsvirkjun ekki af þeirri háttsemi verði fyrirtækið að íhuga að segja upp orkusamningnum við Landsvirkjun. Með því er gefið í skyn að álveri fyrirtækisins, ISAL,…
-
Engin „orkuskipti“ í gangverki tekjuöflunar
Allir sem fylgjast með gangi mála erlendis vita að við höfum fram til þessa farið í gegnum Covid-faraldurinn með minna raski á daglegu lífi en velflestar þjóðir í kringum okkur. Stærstan heiður af þeim árangri eiga landsmenn allir, fyrir að hafa tekið ráðgjöf sérfræðinga alvarlega, en stærstu þakkirnar fara til framlínufólks á öllum sviðum. Nú…
-
Almennar stjórnmálaumræður – eldhúsdagsumræður
Virðulegi forseti. Kæru landsmenn nær og fjær. Það eru blendnar tilfinningar sem fylgja því að horfa yfir sviðið á þessum tímum. Annars vegar blasir við okkur mikill samdráttur sem kemur hart niður á efnahag landsins, afkomu fyrirtækja og fjárhag þúsunda fjölskyldna. Áhrifin af því munu vara lengi og eiga líklega enn þá eftir að koma…
-
Opna samfélagið og óvinurinn
Það var með stolti sem ég kynnti í vikunni árangur Íslands í baráttunni gegn Covid-19 fyrir á annað hundrað hagaðilum í ferðaþjónustu víðsvegar um heiminn, á fundi Alþjóðaráðs ferðaþjónustunnar, WTTC. Það sem ég var stoltust af að geta sagt frá var sú staðreynd að á Íslandi hefði okkur tekist að kveða niður bylgjuna, a.m.k. að…
-
Ný sýn á þróun ferðaþjónustunnar
Þetta óvenjulega sumar gefur okkur tækifæri til að upplifa ferðalag um fallega landið okkar eins og við gerðum fyrir mörgum árum, þegar erlendir ferðamenn voru margfalt færri en undanfarin ár. Sú reynsla gæti opnað augu okkar fyrir ýmsum hliðum uppgangs ferðaþjónustunnar og gefið okkur nýja sýn á hann. Jákvæður vöxtur ferðaþjónustunnar Vöxtur ferðaþjónustunnar hefur að…
-
Hökkum krísuna
Ég þreytist aldrei á að minna okkur öll á mikilvægi þess að knýja á um nýsköpun og nýjar lausnir til að geta brugðist hratt við óvæntum áskorunum í samfélaginu. Við þurfum stöðugt að stokka spilin og spyrja nýrra spurninga. Virkja hugvitið og þekkingu til nýrra lausna. Síðustu mánuðir hafa einnig kennt okkur margt, hversu miklu…
-
„Skal sókn í huga hafin“
Í ræðu minni á Iðnþingi fyrir tveimur árum velti ég upp þeirri spurningu hvort við lifðum mögulega svipaða tíma og Stefan Zweig lýsir svo vel í bók sinni „Veröld sem var“, þar sem hann fjallar um Evrópu um aldamótin 1900 og bjartsýnina sem þá ríkti um frið og óstöðvandi framfarir. Gullöld öryggisins Þetta var „gullöld“…