Author: admin

  • Einföldun regluverks – fyrsti áfangi

    Stjórnvöld hafa alla jafna miklu meiri áhuga á því að setja nýjar reglur en að velta fyrir sér réttmæti þeirra reglna sem fyrir eru. Þetta veldur því að með tímanum verður regluverkið bólgið af óþarfa og þannig óþarflega hamlandi. Við sem trúum á mátt framtaksins vitum hversu skaðlegt þetta er. Þung reglubyrði – vilji til…

  • Nýsköpunarstefna kynnt

    Getan til að skapa ný verðmæti er líklega mikilvægasta einkenni blómlegs og mannvænlegs samfélags. Þá á ég ekki eingöngu við efnahagsleg verðmæti, sem mælast í landsframleiðslu og kaupgetu, heldur einnig menningarleg og samfélagsleg verðmæti sem hafa úrslitaáhrif á hversu vel fólki líður. Það var með stolti sem ég kynnti í vikunni nýsköpunarstefnu fyrir Ísland, framtíðarsýn…

  • Tímamótaverkefni

    Í dag verða kynnt tvö tímamótaverkefni í ferðaþjónustu sem mikil vinna hefur verið lögð í á undanförnum mánuðum og misserum: Framtíðarsýn og Jafnvægisás. Framtíðarsýn ferðaþjónustunnar til ársins 2030 segir okkur hvert við viljum stefna með þessa undirstöðuatvinnugrein. Svarið er skýrt: Við viljum að ferðaþjónustan verði leiðandi í sjálfbærri þróun. Við viljum að hún verði arðsöm…

  • Tíðindamikil vika

    Þrennt þykir mér standa upp úr þegar ég lít til baka yfir síðustu sjö daga. Í fyrsta lagi mjög vel heppnaður flokksráðsfundur okkar Sjálfstæðismanna um liðna helgi. Í öðru lagi skýrsla OECD um Ísland. Og í þriðja lagi hið merkilega nýmæli að taka upp velsældarmælikvarða sem víðara sjónarhorn á þá viðleitni okkar að hámarka hamingju…

  • Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana

    Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Mér segir svo hugur að við séum öll dálítið svekkt í dag. Í gær töpuðum við fyrir Albaníu í fótbolta með markatölu sem ég vil síður nefna. Albanía er u.þ.b. bil átta sinnum fjölmennara land en Ísland. Hvernig má það vera að við séum í þeirri stöðu að vera svekkt yfir…

  • Höldum orku í umræðunni

    Hafi einhver haldið að stuðningsmenn þriðja orkupakkans myndu fyllast fögnuði þegar hann var samþykktur á Alþingi í byrjun vikunnar þá er það misskilningur. Slíkt hlýtur að vera fjarri okkur í máli sem einkenndist af töluverðu leyti af ágreiningi á meðal samherja. Við þurfum að draga lærdóm af umræðunni og hvernig hún þróaðist. Ég trúi að…

  • Hjartað og heilinn eiga bæði heima í pólitík

    Við tölum af velþóknun um „ískalt mat“. Það þýðir að við höfum vikið tilfinningum okkar til hliðar og skoðað málið út frá rökum og engu öðru. Þetta þykir töluverður gæðastimpill á ákvörðunum. Líklega eru engin dæmi þess að talað hafi verið um „sjóðheitt mat“. Hvað þá af velþóknun. Hátt hitastig er alls ekki talið eiga…

  • Fyrir frelsið, fyrir neytendur

    Þú, lesandi góður, getur valið af hverjum þú kaupir rafmagn. Þú getur farið á netið hvenær sem er, gert verðsamanburð með einföldum hætti og skipt um orkusala á augabragði. Samkeppnin í orkusölu er ekki fullkomin en hún er þó fyrir hendi. Fyrirtæki nýta sér hana í töluverðum mæli og geta þannig sparað umtalsverðar fjárhæðir. Einstaklingar…

  • Rætur og vængir

    Ein bestu ráð sem foreldrum hafa verið gefin eru frá Goethe. Hann sagði að foreldrar ættu helst að stefna að því að gefa börnum sínum tvennt: rætur og vængi. Að vissu leyti eru þetta andstæður. Ræturnar halda þér heima, binda þig við sama stað og halda þér í viðjum hins þekkta, hins vanalega og hefðbundna,…

  • Aukin nýsköpun; ekki val heldur nauðsyn

    Heimur batnandi fer. Nánast alls staðar í veröldinni eru lífsgæði miklu meiri en þau sem forfeður og formæður okkar nutu. Þessi staða blasir við og er áberandi á Íslandi. En við stöndum líka frammi fyrir gífurlegum áskorunum. Reglulega er rætt um breytta aldurssamsetningu þjóðarinnar. Kannski ekki rosalega grípandi orðanotkun. En ef spár ganga eftir má…