Category: Uncategorized

  • Frelsið tapast sjaldnast allt í einu

    Greinin birtist í hátíðarriti Orators, febrúar 2026 Ástæður þess að fólk velur laganám í háskóla eru margar. Í mínu tilviki var það aðallega vilji og áhugi á að skilja hvernig leikreglur eru settar og hlutverk lögfræðinnar í þrískiptingu ríkisvaldsins, stjórnmálum og þar með samfélagsgerð okkar. Önnur ástæða var praktísk nálgun. Ég valdi nám sem veitti…

  • Hugleiðingar til og frá Kænugarði

    Vikulöng vinnuferð til Úkraínu er á enda en þetta er í fimmta skiptið sem ég fer þangað frá því Rússar gerðu allsherjarinnrás 24. febrúar 2022. Fyrstu skiptin fór ég sem utanríkisráðherra en síðustu tvö fyrir hönd Evrópuráðsins vegna þess verkefnis sem ég tók að mér að vera sérstakur erindreki fyrir úkraínsk börn. Þegar ég kom í…

  • Óábyrgt plan

    Lýðfræðilegar og samfélagslegar breytingar á Vesturlöndum, þar á meðal á Íslandi, munu leiða til þess að sífellt fækkar vinnandi og verðmætaskapandi hendur verða á bak við hvern þann einstakling sem sökum elli eða örorku þarf á stuðningi samfélagsins að halda. Íslendingar standa vissulega betur að vígi en flest ríki. Er þar er ekki síst að…

  • Upplýsingasorp

    Froskurinn sem soðnar smám saman í potti er gagnleg myndlíking. Samkvæmt henni er hægt að sjóða frosk með því að setja hann í pott af volgu vatni þar sem honum líður bærilega en hita svo smám saman undir honum þar til vatnið er komið á suðu og froskurinn fattar ekki að koma sér upp úr…

  • Umræðuhefðin þarf að breytast

    Þegar við Bjarni Benediktsson höfðum sætaskipti í ríkisstjórn í október 2023 og hann tók við embætti utanríkisráðherra hafði ég á orði við hann að utanríkismálin séu þess eðlis að þau séu neðarlega á baugi í innanlandsstjórnmálum, en þegar þau skyndilega komast á allar varir, þá eru þau mikilvægari en allt annað. Þetta er orðinn veruleikinn…

  • Að mála út fyrir

    Þegar ég byrjaði að skrifa reglulega í Morgunblaðið árið 2017 fylgdi ég fyrstapistlinum úr hlaði með því að segjast vilja skrifa blöndu af almennum hugleiðingum um stjórnmál annars vegar og umfjöllun um viðfangsefni dagsins hins vegar. Þá sagðist ég ekki geta lofað því að skrifin yrðu alltaf í samræmi við það markmið, en hét því…

  • Stöndum vörð um fullveldið

    Viðbrögð við skrifum mínum á þessum vettvangi hafa sjaldan verið meiri en eftir síðasta pistil, um gervigreindina og þann mikla auð sem safnast hefur á hendur örfárra einstaklinga sem stýra stærstu tæknifyrirtækjum heims. Þau komu mér á óvart en glöddu mig. Það er í mínum huga heilbrigðismerki hversu margir eru hugsi yfir þessari þróun og…

  • Gervifrelsi

    Nánast allar hækkanir á bandarískum hlutabréfamarkaði undanfarið ár eru til komnar vegna örfárra risa stórra tæknifyrirtækja og stærstan hluta mælds hagvaxtar þar í landi á sama tímabili má rekja til fordæmalausrar fjárfestingar í gagnaverum sem ætlað er að knýja gervigreindarbyltingu. Hvert þessi þróun mun koma til með að leiða er ómögulegt að spá fyrir um.…

  • Völd og valdheimildir

    Á Íslandi tölum við um stjórnarskipti þegar ný ríkisstjórn tekur við, en ekki valdaskipti. Mér finnst þessi aðgreining mikilvæg því í henni felst kjarninn í nauðsynlegum skilningi á valdmörkum stjórnmálamanna og embættismannakerfisins. Báðir hópar hafa völd og á milli þeirra þarf að finna jafnvægi. Í þau átta ár sem ég hef gegnt ráðherradómi hef ég…

  • Að rækta kærleikann

    Fyrir sjö vikum skilaði heimiliskötturinn okkar, hún Ronja, sér ekki heim. Dagana á eftir litum við oftar út um gluggann, dreifðum miðum í nágrenninu, kölluðum á hana og skráðum okkur í Facebook hópa. Við vonuðumst til að sjá hana koma allt í einu til baka, með sitt dularfulla kattareðli, og láta eins og ekkert hefði…